Karl Gústaf Kristinsson læknir, prófessor emeritus í sýkla- og veirufræði um hinn þögla faraldur sýklalyfjaónæmis sem er ein helsta ógn samtímans og ráð til að sporna við honum.

Karl Gústaf Kristinsson læknir, prófessor emeritus í sýkla- og veirufræði um hinn þögla faraldur sýklalyfjaónæmis sem er ein helsta ógn samtímans og ráð til að sporna við honum.

🎙️ Heilsuhlaðvarpið – Hinn hljóði faraldur sýklalyfjaónæmis?

Í dag ræðum við eitt stærsta en jafnframt vanmetnasta heilbrigðismál samtímans – baráttuna við bakteríur sem hætta smám saman að svara þeim sýklalyfjum sem hafa bjargað ótal mannslífum undanfarna áratugi.

Gestur okkar er Karl G. Kristinsson, fyrrverandi yfirlæknir sýkla- og veirufræðideildar Landspítalans, prófessor emeritus í sýklafræði og einn þekktasti og fremsti sérfræðingur landsins á sviði sýkinga og sýklalyfjaónæmis. Karl hefur í áratugi rannsakað hvernig bakteríur þróast, hvernig við getum komið í veg fyrir útbreiðslu þeirra og hvers vegna skynsamleg notkun sýklalyfja skiptir sköpum fyrir framtíð lýðheilsu.

Nýlega vakti hann athygli á ógnvænlegri þróun þar sem hættulegar bakteríur verða sífellt ónæmari fyrir meðferð. Þetta er þróun sem Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur um árabil talið meðal stærstu ógnana við heilsu mannkyns. En hvað þýðir þetta í raun fyrir okkur hér á Íslandi? Erum við enn í betri stöðu en önnur lönd? Og hvað getum við sjálf gert til að hægja á þessari þróun?

Við ræðum meðal annars:

🦠 Hvers vegna sýklalyfjaónæmi er talið ein stærsta ógn við lýðheilsu á þessari öld.

📈 Nýjar tölur sýna að smit af völdum sýklalyfjaónæmra baktería hafa þrefaldast hér á landi á undanförnum árum – hvað skýrir þessa þróun og hversu alvarleg er staðan?

💊 Hvernig verður sýklalyfjaónæmi til og hvernig getum við hægt á þróuninni?

🌍 Hvaða áhrif hafa ferðalög á útbreiðslu ónæmra baktería og hverju þurfa ferðamenn að huga að þegar þeir koma heim frá svæðum þar sem ónæmi er algengara?

🍽️ Hvaða hlutverki gegnir magasýran í náttúrulegum vörnum líkamans? Geta langvarandi magasýrulyf aukið hættu á ákveðnum sýkingum með því að veikja þessa fyrstu varnarlínu?

⚔️ Hvaða áhrif hafa stríð og átakasvæði á útbreiðslu sýklalyfjaónæmis?

🧬 Er framtíðin fólgin í því að þróa sífellt ný sýklalyf – eða þurfum við að hugsa með allt öðrum hætti, til dæmis með bakteríuveirum (phage therapy), markvissari greiningu og bættri sýklalyfjanotkun?

👶 Hvernig getum við verndað sýklalyfin fyrir komandi kynslóðir?

Í síðari hluta þáttarins beinum við sjónum að íslensku nýsköpunarfyrirtæki sem gæti breytt því hvernig við fylgjumst með heilsu okkar.

🔬 ArcanaBio er að þróa nýja ljóseðlisfræðilega og gervigreindardrifna tækni sem miðar að því að greina hundruð lífmerkja úr munnvatni, í stað þess að þurfa blóðsýni. Markmiðið er að gera reglulega og einfalda heilsufarsmælingu mögulega, meðal annars til að fylgjast með bólgum, streitu og öðrum líffræðilegum breytingum áður en sjúkdómar þróast. Karl G. Kristinsson er yfirlæknisráðgjafi fyrirtækisins.

💧 Getur munnvatn í framtíðinni orðið jafn mikilvægt greiningarsýni og blóð? Hversu langt er tæknin komin og hvaða möguleika opnar hún fyrir persónubundna heilbrigðisþjónustu?

Þetta er þáttur um eina stærstu áskorun nútímalæknisfræðinnar – og jafnframt um nýjar hugmyndir og íslenska nýsköpun sem gætu mótað framtíð greininga, sýkingavarna og persónubundinnar heilsugæslu.

🙏 Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins

Við þökkum kærlega samstarfsaðilum okkar fyrir samstarfið og stuðninginn:

🌱 Bíóbú — lífrænar íslenskar mjólkurvörur úr íslenskri mjólk með betri fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. Heimasíða: www.biobu.is (biobu.is) Elskum lífrænu jógúrtina og einnig lífræna ísinn hjá Skúbb.

🏋️ Hreyfing — heilsurækt, þjálfun, spa og þjónusta fyrir fólk sem vill hlúa að líkama og vellíðan. Spa-ið þar er einstök upplifun - og svo er hægt að skrá sig í sérstakt heilsuprógramm og versla heilsuvörur á vefsíðunni. www.hreyfing.is (Hreyfing - Finndu muninn)

🌱 Greenfit – Heilsan þín á ekki að vera ráðgáta! Heilsumælingar Greenfit eykur aðgengi almennings á mælingum og upplýsingum sem gefa þér innsýn í heilsuna og upplýsingar um hvernig má bæta stöðuna. www.greenfit.is

🛒 Nettó — frábært úrval lífrænna afurða, matvæla, vítamína og hreinlætisvara sem styðja við heilsu á góðu verði í verslunum um allt land. Vekjum athygli á hydroxyapatite tannkremi og frábæru úrvali af lífrænum vörum og vítamínum. Heimasíða: www.netto.is (netto.is)

💧 GeoSilica — íslensk steinefni úr jarðhitavatni, með áherslu á náttúrulegar og hreinar vörur. Vörur á heimsmælikvarða! Kísillinn styður hár, húð, neglur, bein og liðamót á sjálfbæran og hreinan hátt – án aukaefna. Heimasíða: www.geosilica.is (GeoSilica Iceland)

⚡ Happy Hydrate — steinefnadrykkir með natríum, kalíum og magnesíum sem styðja við vökvajafnvægi og vöðvastarfsemi. Minnum sérstaklega á happy hydrate með creatini sem styður einnig við heilaheilsu. Heimasíða: www.happyhydrate.is (Happy Hydrate IS)

🎯 Markmið okkar í Heilsuhlaðvarpinu hefur alltaf verið að fræða, vekja áhuga og kynna leiðir sem geta stutt fólk á sinni heilsuvegferð. Því er sérstaklega ánægjulegt að eiga samstarf við fyrirtæki sem eru einnig á þeirri braut.

Tämä jakso on lisätty Podme-palveluun avoimen RSS-syötteen kautta eikä se ole Podmen omaa tuotantoa. Siksi jakso saattaa sisältää mainontaa.

Jaksot(108)

Elvar og Hilmar Leonardssynir, sjúkraþjálfari og læknir og jafnframt heilbrigðisverkfræðingar sem fara sína leið í því að hámarka heilsu og deila hér með okkur vitneskju sinni og djúpum fróðleik ;)

Elvar og Hilmar Leonardssynir, sjúkraþjálfari og læknir og jafnframt heilbrigðisverkfræðingar sem fara sína leið í því að hámarka heilsu og deila hér með okkur vitneskju sinni og djúpum fróðleik ;)

❤️ Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins 🥩 Kjarnafæði – íslenskar kjötvörur og gömlu góðu uppskriftirnar, meðal annars lifrarpylsa og sviðasulta án óþarfa aukaefna - kjarnafaedi.is 🛒 Nettó – frábær til...

19 Loka 2h 22min

Kristján Þór Gunnarsson heimilislæknir. Höfum við einblínt um of á hitaeiningar en gleymt því sem raunverulega gerist inni í líkamanum?

13 Loka 1h 33min

Kannabis til lækninga | Vísindin, þúsundir sjúklinga og reynslan af notkun kannabis í meðferð erfiðra sjúkdóma | Dr. Bonni Goldstein

Kannabis til lækninga | Vísindin, þúsundir sjúklinga og reynslan af notkun kannabis í meðferð erfiðra sjúkdóma | Dr. Bonni Goldstein

🌿 Getur kannabis raunverulega verið lyf? 🧠 Hvað er endókannabínóíðkerfið – og hvers vegna lærðu margir læknar svo lítið um það í læknanámi? 🔬 Hvað segja rannsóknirnar og hvað hefur læknir sem hefur...

5 Loka 2h 22min

Heiti potturinn | Svefnlyfjaþjóðin | Drífa Sigfúsdóttir | Aukaverkanir, ávanamyndun og leiðin út úr svefnlyfjanotkun

Heiti potturinn | Svefnlyfjaþjóðin | Drífa Sigfúsdóttir | Aukaverkanir, ávanamyndun og leiðin út úr svefnlyfjanotkun

💊 SVEFNLYFJAÞJÓÐIN – HVAÐ GERIST ÞEGAR SKAMMTÍMALAUSN VERÐUR AÐ ÁRALANGRI VENJU? 😴 Íslendingar hafa lengi verið meðal þeirra þjóða sem nota mest af svefn- og slævandi lyfjum. Árið 2024 var notkunin ...

1 Loka 1h 11min

Kollagen – timbrið í byggingu líkamans | Hvað heldur húðinni heilbrigðri? | Dr. Lára G. Sigurðardóttir

Kollagen – timbrið í byggingu líkamans | Hvað heldur húðinni heilbrigðri? | Dr. Lára G. Sigurðardóttir

✨ Hvað getum við sjálf gert til að halda húðinni heilbrigðri, sterkri og fallegri með aldrinum? Í þessum þætti Heilsuhlaðvarpsins fáum við til okkar Dr. Láru G. Sigurðardóttur, lækni með sérmenntun í ...

28 Syys 1h 24min

Hvað gerist þegar við losum um fasíuna? | Verkir, trauma, taugakerfið og andlitslyfting | Ingunn Ragna Sævarsdóttir | Frá krónískum verkjum til verkjaleysis

Hvað gerist þegar við losum um fasíuna? | Verkir, trauma, taugakerfið og andlitslyfting | Ingunn Ragna Sævarsdóttir | Frá krónískum verkjum til verkjaleysis

Fasían, taugakerfið og trauma | Frá krónískum verkjum til verkjaleysis | Ingunn Ragna Sævarsdóttir Í þessum þætti Heilsuhlaðvarpsins ræðum við við Ingunni Rögnu Sævarsdóttur, þjálfara og leiðbeinanda ...

21 Syys 1h 25min

Kannabis – frá fordómum til upplýstrar notkunar | Lyf, vímuefni eða wellness? | Hvað hefur lögleiðing víða í Bandaríkjunum kennt okkur? | Dr. Magnús Þórsson

Kannabis – frá fordómum til upplýstrar notkunar | Lyf, vímuefni eða wellness? | Hvað hefur lögleiðing víða í Bandaríkjunum kennt okkur? | Dr. Magnús Þórsson

🌿 Kannabis – frá fordómum yfir í fræðslu, rannsóknir og upplýstari notkun Í Heita potti Heilsuhlaðvarpsins fáum við til okkar Dr. Magnús Þórsson, prófessor í frumkvöðlafræði við Johnson & Wales Unive...

17 Syys 1h 8min

Að eldast án þess að verða gamall | Hörður Torfason | Að ganga aftur á bak til betri heilsu, dagleg heilsuráð og lífið sjálft

Að eldast án þess að verða gamall | Hörður Torfason | Að ganga aftur á bak til betri heilsu, dagleg heilsuráð og lífið sjálft

🎙️ Að ganga aftur á bak og hvað heldur okkur ungum – í líkama og sál? Í þessum þætti fáum við til okkar Hörð Torfason, einn af litríkari og merkilegri persónum íslenskrar menningar- og samfélagssögu....

14 Syys 1h 16min

Suosittua kategoriassa Koulutus

rss-murhan-anatomia
aamukahvilla
psykopodiaa-podcast
psykologia
rss-hereilla
voi-hyvin-meditaatiot-2
rss-duodecim-lehti
rss-uskonto-on-tylsaa
rss-arkea-ja-aurinkoa-podcast-espanjasta
rss-liian-kuuma-peruna
aloita-meditaatio
rss-rahamania
rss-narsisti
kesken
jari-sarasvuo-podcast
rahapuhetta
rss-niinku-asia-on
ihminen-tavattavissa-tommy-hellsten-instituutti
rss-vapaudu-voimaasi
rss-luonnollinen-synnytys-podcast