Sjúkdómurinn sem breytti öllu – og baráttan fyrir fleiri valkostum í heilbrigðiskerfinu | Siggi Jóhannesson | Hampur til lækninga

Sjúkdómurinn sem breytti öllu – og baráttan fyrir fleiri valkostum í heilbrigðiskerfinu | Siggi Jóhannesson | Hampur til lækninga

🎙️ Hvað gerist þegar dóttir þín greinist með einn flóknasta og sjaldgæfasta taugasjúkdóm heims – og framtíðin er allt í einu full af óvissu?

Í þessum þætti ræðum við við Sigurð Hólmar Jóhannesson, Sigga Jóhannesson, um einstaka vegferð hans og eiginkonu hans Ragnheiðar Erlu Hjaltadóttur eftir að dóttir þeirra, Sunna Valdís, greindist um eins árs aldurinn með Alternating Hemiplegia of Childhood (AHC). Sunna Valdís er orðin tvítug í dag og hefur fjölskyldan í nær tvo áratugi tekist á við áskoranir sem fáir geta ímyndað sér.

En þetta er ekki aðeins saga um erfiðleika. Þetta er saga um æðruleysi, ótrúlega þrautseigju, ást og fólk sem ákvað að láta eigin reynslu verða öðrum til góðs. 💛

Við ræðum meðal annars:

🧠 AHC – sjúkdóminn sem breytti öllu. Hvernig birtist hann, hvað þýðir hann fyrir daglegt líf og hvernig hefur fjölskyldan tekist á við óvissuna?

👨‍👩‍👧 Vegferð fjölskyldunnar. Hvernig halda foreldrar áfram þegar barnið þeirra glímir við svo alvarleg veikindi? Hvað hefur þessi reynsla kennt þeim um lífið, vonina og það sem raunverulega skiptir máli?

🌿 CBD og baráttuna fyrir aðgangi að meðferð. Siggi segir frá því hversu mikilvægt CBD reyndist Sunnu Valdísi og hvernig fjölskyldan þurfti að berjast fyrir því að geta veitt henni þá meðferð sem þau töldu hjálpa henni. Við ræðum stofnun Hampfélagsins, innflutning CBD-olía, verslunina sem þau stofnuðu og átökin við kerfið.

🔬 Hvað hafa vísindin sýnt um lækningalega möguleika kannabisefna?

🏥 Heilbrigðiskerfið – og hvað þarf að breytast? Hvað gerist þegar fjölskyldur þurfa sjálfar að leita lausna, berjast fyrir hjálpartækjum eða knýja fram breytingar? Og hvernig getur reynsla þeirra nýst öðrum sem glíma við langvinn veikindi eða fötlun?

♿ Hjálpartæki sem bæta lífsgæði. Fjölskyldan hóf einnig innflutning hjálpartækja fyrir fatlað fólk og hefur barist fyrir því að aðgangur að þeim sé betri.

🌍 Frá Íslandi til rannsóknarstofa Evrópu og Bandaríkjanna. Siggi segir frá því hvernig þau hafa tengt saman vísindafólk, fjölskyldur og samtök, stutt rannsóknir á AHC, stofnað samtök á heimsvísu og hér á landi og unnið að heimildarmyndum sem vekja athygli á sjúkdómnum.

⌚ VALDÍS – úr sem ber nafn dótturinnar. Við ræðum nýjasta verkefni Sigga, úr sem hann hannaði og tileinkaði Sunnu Valdísi, þar sem markmiðið er að styðja rannsóknir og færa fjölskyldum um allan heim meiri von.

✨ Þetta er þáttur sem á erindi við miklu fleiri en þá sem þekkja AHC. Hér er að finna reynslu, upplýsingar og hugmyndir sem geta nýst fólki sem glímir við hvers kyns sjúkdóma, langvinn veikindi eða fötlun – og aðstandendum þeirra. Um leið er þetta hugvekjandi samtal um það hvernig einstaklingar geta haft áhrif á samfélagið, breytt kerfum og opnað nýjar leiðir fyrir aðra.

Hlustaðu á einstaka sögu um ást, baráttu og von – og hvernig erfiðasta reynsla lífsins getur orðið að afli sem bætir líf annarra. 🎧💛

🎙️ Heilsuhlaðvarp Lukku og Jóhönnu Vilhjálms

Þátturinn er unninn í samstarfi við frábæra samstarfsaðila okkar:

💚 Hreyfingu – þar sem heilsa, hreyfing og vellíðan eru í fyrirrúmi. Námskeið að hefjast! hreyfing.is

🐄 Bíóbú – Íslenskar lífrænar mjólkurvörur fyrir þau sem vilja velja lífrænt og njóta góðra mjólkurvara.

🥩 Kjarnafæði – nýr samstarfsaðili Heilsuhlaðvarpsins! Við bjóðum Kjarnafæði hjartanlega velkomið í hópinn. Þar má meðal annars finna lifrarpylsuna og sviðasultuna, gerðar eftir gömlu góðu uppskriftunum, án aukaefna. Íslenskur matur og hefðir sem eiga svo sannarlega erindi við okkur enn í dag. 💛

🛒 Nettó – sem auðveldar okkur að velja vel í daglegu lífi. Frábær tilboð á netto.is. 🥦 Greenfit – fyrir góða heilsu! Heilsumælingar, rauð ljós, súrefnis- og kuldameðferðir - greenfit.is.

-----

🌿 Ráðstefnan sem við ræddum um og Siggi kemur fram á: Health for the Future: healthforthefuture.is — 33% afsláttur fyrir Íslendinga af miðum á viðburðinn.

🛍️ Betri dagar – verslun fjölskyldunnar: betridagar.is — CBD-olíur og aðrar vörur sem þau hafa kynnt og flutt inn.

🧠 AHC-samtökin á Íslandi: ahc.is — upplýsingar um sjúkdóminn, starf samtakanna og baráttuna fyrir rannsóknum og bættum lífsgæðum fólks með AHC og fjölskyldna þeirra.

Tämä jakso on lisätty Podme-palveluun avoimen RSS-syötteen kautta eikä se ole Podmen omaa tuotantoa. Siksi jakso saattaa sisältää mainontaa.

Jaksot(108)

Elvar og Hilmar Leonardssynir, sjúkraþjálfari og læknir og jafnframt heilbrigðisverkfræðingar sem fara sína leið í því að hámarka heilsu og deila hér með okkur vitneskju sinni og djúpum fróðleik ;)

Elvar og Hilmar Leonardssynir, sjúkraþjálfari og læknir og jafnframt heilbrigðisverkfræðingar sem fara sína leið í því að hámarka heilsu og deila hér með okkur vitneskju sinni og djúpum fróðleik ;)

❤️ Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins 🥩 Kjarnafæði – íslenskar kjötvörur og gömlu góðu uppskriftirnar, meðal annars lifrarpylsa og sviðasulta án óþarfa aukaefna - kjarnafaedi.is 🛒 Nettó – frábær til...

19 Loka 2h 22min

Kristján Þór Gunnarsson heimilislæknir. Höfum við einblínt um of á hitaeiningar en gleymt því sem raunverulega gerist inni í líkamanum?

13 Loka 1h 33min

Kannabis til lækninga | Vísindin, þúsundir sjúklinga og reynslan af notkun kannabis í meðferð erfiðra sjúkdóma | Dr. Bonni Goldstein

Kannabis til lækninga | Vísindin, þúsundir sjúklinga og reynslan af notkun kannabis í meðferð erfiðra sjúkdóma | Dr. Bonni Goldstein

🌿 Getur kannabis raunverulega verið lyf? 🧠 Hvað er endókannabínóíðkerfið – og hvers vegna lærðu margir læknar svo lítið um það í læknanámi? 🔬 Hvað segja rannsóknirnar og hvað hefur læknir sem hefur...

5 Loka 2h 22min

Heiti potturinn | Svefnlyfjaþjóðin | Drífa Sigfúsdóttir | Aukaverkanir, ávanamyndun og leiðin út úr svefnlyfjanotkun

Heiti potturinn | Svefnlyfjaþjóðin | Drífa Sigfúsdóttir | Aukaverkanir, ávanamyndun og leiðin út úr svefnlyfjanotkun

💊 SVEFNLYFJAÞJÓÐIN – HVAÐ GERIST ÞEGAR SKAMMTÍMALAUSN VERÐUR AÐ ÁRALANGRI VENJU? 😴 Íslendingar hafa lengi verið meðal þeirra þjóða sem nota mest af svefn- og slævandi lyfjum. Árið 2024 var notkunin ...

1 Loka 1h 11min

Kollagen – timbrið í byggingu líkamans | Hvað heldur húðinni heilbrigðri? | Dr. Lára G. Sigurðardóttir

Kollagen – timbrið í byggingu líkamans | Hvað heldur húðinni heilbrigðri? | Dr. Lára G. Sigurðardóttir

✨ Hvað getum við sjálf gert til að halda húðinni heilbrigðri, sterkri og fallegri með aldrinum? Í þessum þætti Heilsuhlaðvarpsins fáum við til okkar Dr. Láru G. Sigurðardóttur, lækni með sérmenntun í ...

28 Syys 1h 24min

Hvað gerist þegar við losum um fasíuna? | Verkir, trauma, taugakerfið og andlitslyfting | Ingunn Ragna Sævarsdóttir | Frá krónískum verkjum til verkjaleysis

Hvað gerist þegar við losum um fasíuna? | Verkir, trauma, taugakerfið og andlitslyfting | Ingunn Ragna Sævarsdóttir | Frá krónískum verkjum til verkjaleysis

Fasían, taugakerfið og trauma | Frá krónískum verkjum til verkjaleysis | Ingunn Ragna Sævarsdóttir Í þessum þætti Heilsuhlaðvarpsins ræðum við við Ingunni Rögnu Sævarsdóttur, þjálfara og leiðbeinanda ...

21 Syys 1h 25min

Kannabis – frá fordómum til upplýstrar notkunar | Lyf, vímuefni eða wellness? | Hvað hefur lögleiðing víða í Bandaríkjunum kennt okkur? | Dr. Magnús Þórsson

Kannabis – frá fordómum til upplýstrar notkunar | Lyf, vímuefni eða wellness? | Hvað hefur lögleiðing víða í Bandaríkjunum kennt okkur? | Dr. Magnús Þórsson

🌿 Kannabis – frá fordómum yfir í fræðslu, rannsóknir og upplýstari notkun Í Heita potti Heilsuhlaðvarpsins fáum við til okkar Dr. Magnús Þórsson, prófessor í frumkvöðlafræði við Johnson & Wales Unive...

17 Syys 1h 8min

Að eldast án þess að verða gamall | Hörður Torfason | Að ganga aftur á bak til betri heilsu, dagleg heilsuráð og lífið sjálft

Að eldast án þess að verða gamall | Hörður Torfason | Að ganga aftur á bak til betri heilsu, dagleg heilsuráð og lífið sjálft

🎙️ Að ganga aftur á bak og hvað heldur okkur ungum – í líkama og sál? Í þessum þætti fáum við til okkar Hörð Torfason, einn af litríkari og merkilegri persónum íslenskrar menningar- og samfélagssögu....

14 Syys 1h 16min

Suosittua kategoriassa Koulutus

rss-murhan-anatomia
aamukahvilla
psykopodiaa-podcast
psykologia
rss-hereilla
voi-hyvin-meditaatiot-2
rss-duodecim-lehti
rss-uskonto-on-tylsaa
rss-arkea-ja-aurinkoa-podcast-espanjasta
rss-liian-kuuma-peruna
aloita-meditaatio
rss-rahamania
rss-narsisti
kesken
jari-sarasvuo-podcast
rahapuhetta
rss-niinku-asia-on
ihminen-tavattavissa-tommy-hellsten-instituutti
rss-vapaudu-voimaasi
rss-luonnollinen-synnytys-podcast