Karl Gústaf Kristinsson læknir, prófessor emeritus í sýkla- og veirufræði um hinn þögla faraldur sýklalyfjaónæmis sem er ein helsta ógn samtímans og ráð til að sporna við honum.

Karl Gústaf Kristinsson læknir, prófessor emeritus í sýkla- og veirufræði um hinn þögla faraldur sýklalyfjaónæmis sem er ein helsta ógn samtímans og ráð til að sporna við honum.

🎙️ Heilsuhlaðvarpið – Hinn hljóði faraldur sýklalyfjaónæmis?

Í dag ræðum við eitt stærsta en jafnframt vanmetnasta heilbrigðismál samtímans – baráttuna við bakteríur sem hætta smám saman að svara þeim sýklalyfjum sem hafa bjargað ótal mannslífum undanfarna áratugi.

Gestur okkar er Karl G. Kristinsson, fyrrverandi yfirlæknir sýkla- og veirufræðideildar Landspítalans, prófessor emeritus í sýklafræði og einn þekktasti og fremsti sérfræðingur landsins á sviði sýkinga og sýklalyfjaónæmis. Karl hefur í áratugi rannsakað hvernig bakteríur þróast, hvernig við getum komið í veg fyrir útbreiðslu þeirra og hvers vegna skynsamleg notkun sýklalyfja skiptir sköpum fyrir framtíð lýðheilsu.

Nýlega vakti hann athygli á ógnvænlegri þróun þar sem hættulegar bakteríur verða sífellt ónæmari fyrir meðferð. Þetta er þróun sem Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur um árabil talið meðal stærstu ógnana við heilsu mannkyns. En hvað þýðir þetta í raun fyrir okkur hér á Íslandi? Erum við enn í betri stöðu en önnur lönd? Og hvað getum við sjálf gert til að hægja á þessari þróun?

Við ræðum meðal annars:

🦠 Hvers vegna sýklalyfjaónæmi er talið ein stærsta ógn við lýðheilsu á þessari öld.

📈 Nýjar tölur sýna að smit af völdum sýklalyfjaónæmra baktería hafa þrefaldast hér á landi á undanförnum árum – hvað skýrir þessa þróun og hversu alvarleg er staðan?

💊 Hvernig verður sýklalyfjaónæmi til og hvernig getum við hægt á þróuninni?

🌍 Hvaða áhrif hafa ferðalög á útbreiðslu ónæmra baktería og hverju þurfa ferðamenn að huga að þegar þeir koma heim frá svæðum þar sem ónæmi er algengara?

🍽️ Hvaða hlutverki gegnir magasýran í náttúrulegum vörnum líkamans? Geta langvarandi magasýrulyf aukið hættu á ákveðnum sýkingum með því að veikja þessa fyrstu varnarlínu?

⚔️ Hvaða áhrif hafa stríð og átakasvæði á útbreiðslu sýklalyfjaónæmis?

🧬 Er framtíðin fólgin í því að þróa sífellt ný sýklalyf – eða þurfum við að hugsa með allt öðrum hætti, til dæmis með bakteríuveirum (phage therapy), markvissari greiningu og bættri sýklalyfjanotkun?

👶 Hvernig getum við verndað sýklalyfin fyrir komandi kynslóðir?

Í síðari hluta þáttarins beinum við sjónum að íslensku nýsköpunarfyrirtæki sem gæti breytt því hvernig við fylgjumst með heilsu okkar.

🔬 ArcanaBio er að þróa nýja ljóseðlisfræðilega og gervigreindardrifna tækni sem miðar að því að greina hundruð lífmerkja úr munnvatni, í stað þess að þurfa blóðsýni. Markmiðið er að gera reglulega og einfalda heilsufarsmælingu mögulega, meðal annars til að fylgjast með bólgum, streitu og öðrum líffræðilegum breytingum áður en sjúkdómar þróast. Karl G. Kristinsson er yfirlæknisráðgjafi fyrirtækisins.

💧 Getur munnvatn í framtíðinni orðið jafn mikilvægt greiningarsýni og blóð? Hversu langt er tæknin komin og hvaða möguleika opnar hún fyrir persónubundna heilbrigðisþjónustu?

Þetta er þáttur um eina stærstu áskorun nútímalæknisfræðinnar – og jafnframt um nýjar hugmyndir og íslenska nýsköpun sem gætu mótað framtíð greininga, sýkingavarna og persónubundinnar heilsugæslu.

🙏 Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins

Við þökkum kærlega samstarfsaðilum okkar fyrir samstarfið og stuðninginn:

🌱 Bíóbú — lífrænar íslenskar mjólkurvörur úr íslenskri mjólk með betri fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. Heimasíða: www.biobu.is (biobu.is) Elskum lífrænu jógúrtina og einnig lífræna ísinn hjá Skúbb.

🏋️ Hreyfing — heilsurækt, þjálfun, spa og þjónusta fyrir fólk sem vill hlúa að líkama og vellíðan. Spa-ið þar er einstök upplifun - og svo er hægt að skrá sig í sérstakt heilsuprógramm og versla heilsuvörur á vefsíðunni. www.hreyfing.is (Hreyfing - Finndu muninn)

🌱 Greenfit – Heilsan þín á ekki að vera ráðgáta! Heilsumælingar Greenfit eykur aðgengi almennings á mælingum og upplýsingum sem gefa þér innsýn í heilsuna og upplýsingar um hvernig má bæta stöðuna. www.greenfit.is

🛒 Nettó — frábært úrval lífrænna afurða, matvæla, vítamína og hreinlætisvara sem styðja við heilsu á góðu verði í verslunum um allt land. Vekjum athygli á hydroxyapatite tannkremi og frábæru úrvali af lífrænum vörum og vítamínum. Heimasíða: www.netto.is (netto.is)

💧 GeoSilica — íslensk steinefni úr jarðhitavatni, með áherslu á náttúrulegar og hreinar vörur. Vörur á heimsmælikvarða! Kísillinn styður hár, húð, neglur, bein og liðamót á sjálfbæran og hreinan hátt – án aukaefna. Heimasíða: www.geosilica.is (GeoSilica Iceland)

⚡ Happy Hydrate — steinefnadrykkir með natríum, kalíum og magnesíum sem styðja við vökvajafnvægi og vöðvastarfsemi. Minnum sérstaklega á happy hydrate með creatini sem styður einnig við heilaheilsu. Heimasíða: www.happyhydrate.is (Happy Hydrate IS)

🎯 Markmið okkar í Heilsuhlaðvarpinu hefur alltaf verið að fræða, vekja áhuga og kynna leiðir sem geta stutt fólk á sinni heilsuvegferð. Því er sérstaklega ánægjulegt að eiga samstarf við fyrirtæki sem eru einnig á þeirri braut.

Denne episoden er hentet fra en åpen RSS-feed og er ikke publisert av Podme. Den kan derfor inneholde annonser.

Episoder(98)

Heyrnarskerðing og áhrif á lífið og heilaheilsu | Mikilvægi snemmbærrar greiningar | Er kominn tími á heyrnarpróf? | Eva Albrechtsen, háls-, nef- og eyrnalæknir með sérhæfingu í heyrnarfræðum

Heyrnarskerðing og áhrif á lífið og heilaheilsu | Mikilvægi snemmbærrar greiningar | Er kominn tími á heyrnarpróf? | Eva Albrechtsen, háls-, nef- og eyrnalæknir með sérhæfingu í heyrnarfræðum

👂 Heyrnin – eitt mikilvægasta skynfærið sem við megum ekki taka sem sjálfsögðum hlut Í þessum þætti ræðum við við Evu Albrechtsen, háls-, nef- og eyrnalækni með sérhæfingu í heyrnarfræðum, um heyrnin...

31 Aug 1h 32min

Hvernig verður öldrunarþjónusta framtíðarinnar - hvað þurfum við að gera og hvernig viljum við eldast? María Fjóla Harðardóttir fyrrverandi forstjóri Hrafnistu

Hvernig verður öldrunarþjónusta framtíðarinnar - hvað þurfum við að gera og hvernig viljum við eldast? María Fjóla Harðardóttir fyrrverandi forstjóri Hrafnistu

👵🏼 Hvernig viljum við eldast – og er kerfið tilbúið fyrir það sem er fram undan? Í þessum þætti ræðum við við Maríu Fjólu Harðardóttur, hjúkrunarfræðing og fyrrverandi forstjóra Hrafnistu, sem hefur...

24 Aug 1h 12min

Mögnuð saga 13 ára drengs sem lamaðist skyndilega og var sagt að hann gæti aldrei gengið aftur | Magnús Helgason & Sigurbjörg Ýr Guðmundsdóttir

Mögnuð saga 13 ára drengs sem lamaðist skyndilega og var sagt að hann gæti aldrei gengið aftur | Magnús Helgason & Sigurbjörg Ýr Guðmundsdóttir

Lífið breytist á einu augabragði. En von og þrotlaus vinna flytur fjöll! ✨ Sumarið 2023 breyttist líf hins 13 ára íþróttastráks Magnúsar Mána á einni nóttu þegar hann lamaðist skyndilega frá bringu og...

17 Aug 1h 21min

Heilandi garðar við sjúkrahús – lúxus eða nauðsynlegir innviðir? Hvernig er staðan við nýja Landspítalann?  Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir og Svanhildur 'Sasa' Sigurðardóttir

Heilandi garðar við sjúkrahús – lúxus eða nauðsynlegir innviðir? Hvernig er staðan við nýja Landspítalann? Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir og Svanhildur 'Sasa' Sigurðardóttir

Heilandi garðar við sjúkrahús – lúxus eða nauðsynlegir innviðir? Hvernig er staðan við nýja Landspítalann? Í þessum þætti ræðum við við Guðfinnu Mjöll Magnúsdóttur og Svanhildi „Sösu“ Sigurðardóttur u...

10 Aug 1h 28min

Er golf bara dýr og tímafrek yfirstéttaríþrótt eða leynist þar lykillinn að bættri lýðheilsu, minni einmanaleika og hraustari og hamingjusamari þjóð? | Hulda Bjarnadóttir, forseti Golfsambands Íslands

Er golf bara dýr og tímafrek yfirstéttaríþrótt eða leynist þar lykillinn að bættri lýðheilsu, minni einmanaleika og hraustari og hamingjusamari þjóð? | Hulda Bjarnadóttir, forseti Golfsambands Íslands

Í þessum bráðskemmtilega og kraftmikla þætti af heilsuhlaðvarpi Lukku og Jóhönnu mæta þær Huldu Bjarnadóttur, fyrsta kvenkyns forseta Golfsambands Íslands. Hulda, sem er þekkt fyrir að vera algjör „ja...

4 Aug 1h 27min

Auður Elísabet Jóhannsdóttir, hjúkrunarfræðingur og IFS meðferðaraðili – Pendúll taugakerfisins og krabbameinsgreiningar - hluti 1

Auður Elísabet Jóhannsdóttir, hjúkrunarfræðingur og IFS meðferðaraðili – Pendúll taugakerfisins og krabbameinsgreiningar - hluti 1

Pendúll taugakerfisins – innra öryggi, IFS og krabbameinsvegferðin Í þessum þætti ræðum við við Auði Elísabetu Jóhannsdóttur hjúkrunarfræðing og IFS meðferðaraðila um taugakerfið, áföll, krabbameinsve...

29 Jul 2h 20min

Pálmi V Jónsson öldrunarlæknir um tilgang lífsins, kjötsúpu afa síns, leyndarmálið á bak við heilbrigða öldrun og Gunnarshólma; framtíðarparadís fyrir 60 ára og eldri.

Pálmi V Jónsson öldrunarlæknir um tilgang lífsins, kjötsúpu afa síns, leyndarmálið á bak við heilbrigða öldrun og Gunnarshólma; framtíðarparadís fyrir 60 ára og eldri.

Pálmi V. Jónsson, öldrunarlækni og prófessor, hefur í áratugi verið leiðandi rödd í málefnum eldra fólks á Íslandi. Í þessum fróðlega þætti af Heilsuhlaðvarpinu brýtur Pálmi upp staðalmyndir um ellina...

13 Jul 1h 53min

Populært innen Fakta

fastlegen
dine-penger-pengeradet
relasjonspodden-med-dora-thorhallsdottir-kjersti-idem
treningspodden
foreldreradet
rss-strid-de-norske-borgerkrigene
jakt-og-fiskepodden
rss-orjasater
sinnsyn
hverdagspsyken
tomprat-med-gunnar-tjomlid
mikkels-paskenotter
rss-kunsten-a-leve
rss-var-forste-kaffe
lederskap-nhhs-podkast-om-ledelse
gravid-uke-for-uke
rss-impressions-2
fryktlos
branncast
kvallm